Addi T
01.07.2007 22:31:40 / Addi T

Allt mögulegt

Úff langt síðan ég hef bloggað síðast... Það merkilegasta sem gerst hefur síðan er:

 - ég og stína erum búin að kaupa í íbúð í Þrastarási 14 í hfj

- Stjarnan vildi ekki endurnýja samninginn minn og stefnir allt í að ég semji við mitt uppeldisfélag

- Ég tapa alltaf peningum á lengjunni ef ég veðja á Fjölni

Nenni ekki að blogga meir í bili... kemst líklega í fílinginn síðar

kveðja úr nýju íbúðinni minni


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 15:07:21 / Addi T

Útlendingar, útlendingar og útlendingar

Jæja nú er mér alveg nóg boðið. Hvað er málið með alla þessa útlendinga út um allt. Alls staðar sem maður kemur eru útlendingar. Ég fór í bakarí um daginn og afgreiðslu daman segir góðan daginn og ég bið um skinkuhorn og ostaslaufu. Þá segir afgreiðslustúlkan á ensku "I do not understand icelandic, can you tell me what you want in English"!!!

Ég fór strax að hugsa.... Hvernig í andskotanum segir maður skinkuhorn á ensku mér datt í hug að segja ham corner en það væri mjög líklega ekki rétt. Næsta hugsun var hvernig segir maður ostaslaufa það eina sem mér datt í hug var cheese og svo vissi ég ekki meira. Þetta endaði allt saman með því að ég benti á það sem ég vildi.

 Mér finnst að fólk sem á svona bakarí og búðir eigi að stetja skilti í gluggan að afgreiðslufólkið skilji ekki íslensku eða að starfsmennirnir sem skilja ekki íslensku séu með skilti um hálsinn sem stendur á "Ég ekki skilja neitt!! Ég útlendingur"!!!!!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 12:26:39 / Addi T

Handbolti

Það mætti nýr útlendingur á æfingu hjá okkur í vikunni... Annar Georgíumaður það virðist sem við ætlum að verða ein mesta útlendingahersveit sem spilað hefur á Íslandi. Við getum stillt upp al útlensku liði fyrir utan vinstra horn ef við kaupum þennan gæja.. Hann var reyndar nokkuð góður spilari, það verður gaman að sjá hvað Stjarnan gerir.

 Leikur í kvöld við Val... Við getum eyðilagt titilbaráttuna fyrir þeim og lýst mér ansi vel á að gera það ég spái 33 - 28 sigri stjörnunnar í kvöld.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 19:48:22 / Addi T

Bikarmeistarar drulla á sig

Góðan dag mínir tryggu lesendur.. Vonandi hafið þið ekki étið á ykkur fingurna við að bíða eftir bloggi frá mér.

Það helsta í fréttum er:´
- Áhugi erlendra liða er að aukast
- Ég varð bikarmeistari annað árið í röð
- Stjarnan var að tapa fyrir HK (drullu leikur)
- Íbúðin hefur aldrei litið betur út
- Hundurinn er að reyna að tína öllum hárunum sínum
- Stjórnmálamenn eru bjánar
- Ég hef líklega verið bannaður á hverfisbarnum eftir að hafa gengið berserksgang þar inni

 Kveðja
Addi Tapsári


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 12:32:46 / Addi T

Kraftur frusunnar sigrar á ný!!!

Frunsur tvær hafði ég á miðvikudaginn í undanúrslitaleiknum á móti ÍR og ekki er að því að spyrja að við sigruðum þann leikinn og án alls vafa var það kraftur frunsunnar sem bjargaði málunum í þessum leik. Því eins og ég hef skrifað hér áður þá hef ég aldrei tapað leik þegar ég hef verið með frunsu!!

Það er spurning um að fórna sér í einhvern viðbjóð til þess að hafa frunsu þann 10. mars... bara til að gulltryggja sigurinn á móti Fram því það kemur ekkert annað til greina en sigur á móti Andra Berg og félögum í Fram.

Annars var ég að horfa á Kastljós í gær og þá kom einhver femínista bjáni með fáránlegustu uppástungu sem ég hef heyrt síðan ég fæddist. Þessi stúlka er víst eitthvað á mála hjá vinstri grænum og ætlar sá annars ágæti flokkur að kjósa um þessa uppástungu á flokksþingi sínu um helgina. Ef þeir samþykkja þessa tillögu og verða í stjórn á næsta þingi þá er ljóst að lýðræði er ekki lengur við lýði á Íslandi. Því að þeir ætla að þröngva því upp á landið að það verði jafnt kynjahlutfall á alþingi. Allir þeir sem vita eitthvað út á hvað lýðræði snýst þá vita þeir um leið hversu fáránlegt þetta hljómar. Einnig ætluðu þeir að veita þeim fyrirtækjum sem hafa jafnt kynjahlutfall í stjórnum sínum góðan skattaafslátt!! En hún tók samt fram að þetta gengi ekki yfir öll fyrirtæki. Ég held að feministar á Íslandi þurfi nú aðeins að fara að skoða sinn gang og athuga í sér hausinn því að þær virðast ekki lengur vita hvernig lýðræði virkar né hvernig frjáls markaður á að vera..

Ekki ætla ég einu sinni að byrja að tala um það að Hótel Saga hafi sagt klámhópnum að þeir væru ekki velkomnir að gista hjá þeim.. Alltaf gaman að búa í þjóðfélagi þar sem að saklaust fólk getur ekki lengur fengið að gista á hótelum vegna atvinnu sinnar sem er fullkomlega lögleg í heimalandi sínu.

Eigum við ekki bara að fara að henda öllum hollendingum út úr landinu og banna þeim að koma hingað líka.. jújú það er nefnilega löglegt þar í landi að reykja og eiga hass en það er nú stranglega bannað hér!! Best að boycutta allt hollenskt og helst að henda þeim líka út úr landinu!!!!!

Fólk er fífl....


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 14:58:10 / Addi T

Tollur & boltinn

Núna er ég búinn að bíða í mánuð eftir að búslóðin mín láti sjá sig á klakanum og ekkert gengur. Það nýjasta er að tollurinn vill ekki drullast til að gefa mér leyfi á að taka úr gámnum. Það er eitthvert vandamál með kvittanir á hlutunum sem ég keypti í DK.

Annars vil ég lýsa því yfir að mér fannst handboltalandsliðið standa sig afar vel á HM en mér fannst þeir líka eyðileggja svolítið fyrir sjálfum sér að hafa ekki náða ð spila betur á móti rússum, það tap var frekar dapurt þar sem að rússarnir voru að spila afar daprann leik. En ekki er alltaf hægt að eiga toppleik eins og einn vinur minn sagði ekki fyrir svo löngu síðan.

Fyrsti leikur hjá Stjörnunni verður 10. eða 12 febrúar á móti Haukum og er ég nokkuð viss um að við eigum eftir að sigra í leiknum og mjaka okkur nær toppnum. Hvet ég alla sem vilja sjá mig í stuttbuxum að kíkja á leikinn.

Kveðja úr húsgagnalausu húsi!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 13:48:06 / Addi T

Ekkert um handbolta

Ég fór í IKEA fyrir nokkrum dögum og var að bíða eftir fótum á stofuborðið mitt. Á meðan ég beið ruku nokkrar hugsanir niður í höfuðið á mér og ég ætla að segja ykkur hverjar þær voru.

Fyrsta hugsuninn hjá mér var að allir feitir einstaklingar á Íslandi hefðu safnast saman og sótt um vinnu hjá IKEA og fengið hana. Það var án gríns einn starfsmaður sem var ekki 45 kílóum of þungur. Svo fór ég að velta því fyrir hvort að starfsmennirnir hefðu fitnað svona við að vinna þarna eða að þeir hafi verið svona feitir fyrir. Er það hugsanlegt að IKEA sem með einhverja hugmynd um að feitir starfsmenn séu betri starfsmenn en þeir grönnu, ef svo er þá eru þeir með bullandi fordóma gagnvart grönnu fólki.

Það næsta sem ég tók eftir var að allir þeir starfsmen sem voru ekki feitir voru útlendingar sem segir mér að IKEA vill bara ráða grannt fólk ef það eru útlendingar sem styður þá skoðun mína að stjórnendur IKEA séu með fordómafyllra fólki á Íslandi því að þeir ráða bara feita íslendinga og granna útlendinga. Það þarf að fara að senda einhverja ríkisstofnun á þá og athuga þetta.

Þangað til næst


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 15:47:27 / Addi T

Ísland veii

Jæja þá er ég fluttur heim til íslands og er bara að bíða eftir að eigur mínar koma hingað líka, því þá get ég flutt inn í löngumýri 18 sem ég mun búa í alla vega fram á sumar.

Ætli það besta við að vera komin heim sé ekki þetta yndislega frost sem er búið að vera síðan ég kom. Ég hef skrifað undir samning við stjörnuna sem gildir fram á sumar þannig að allir sem vilja sjá mig í stuttbuxum og stuttermabol ættu að mæta á næsta leik stjörnunnar þ.e.a.s. ef ég kemst í liðið

Vildi bara koma með smá tilkynningu eftir langt blogg leysi.. Ég hvet einnig fólk til að kíkja á síðu fyrsta bogglara heimsins en þá síðu er að finna undir der bomber linknum hér til hliðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 13:39:33 / Addi T

Brandari

Jón vildi mjög mikið stunda kynlíf með einni af ungu stelpunum sem unnu með honum, en því miður þá átti hún kærasta. Dag einn var jón svo graður að réð ekki við sig lengur og gekk upp að henni og sagði: "ég gef þér 10.000 kr, ef ég má ríða þér" því miður fyrir Jón þá sagði hún nei.

Jón hugsaði sig aðeins um og sagði svo: "Ég er fljótur, ég hendi peningunum á gólfið, þú beygir þig niður eftir þeim, ég verð búinn þegar þú ert búinn að taka peningana upp". Stelpan hugsaði aðeins um þetta og ákvað að hringja í kærastann sinn til að leita ráða. Kærastinn hennar sagði, biddu um 20.000 kr. og vertu bara það fljót að ná taka peningana upp að hann hefur ekki tíma til að taka typpið út úr buxunum.

Stelpan ákvað að samþykkja tilboð Jóns eftir að kærastinn sagði henni þetta. Eftir 30 mínútur var stelpan ekki ennþá búinn að hafa samband við kærastann sinn og hann varð því pínulítið órólegur en ákvað að bíða aðeins lengur, eftir 45 mínútur ákvað hann að hringja í hana og spyrja hvað hefði gerst.

Stelpan svara í símann og kærastinn hennar spyr hvað hefði tekið svona langan tíma þá svarar stelpan..

HELVÍTIS FÍFLIÐ BORGAÐI Í KLINKI!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 20:17:08 / Addi T

Handbolti

Jæja þá er það komið á hreint.. Ég mun ekki halda áfram eftir áramót hérna á eyjunni Mors. Þann 1. janúar er ég laus allra mála og þarf því núna að finna mér nýjan klúbb.. það er bara spurning hvaða klúbbur það verður.

Annars ein saga af dönum. Við förum alltaf að lyfta eftir æfingu á mánudögum og var engin breyting þar á í kvöld. Eftir æfinguna var einn gaurinn í liðinu að tala um stelpur, hann var nefnilega að rífast við kærustuna sína. Þá byrjaði allt í einu einn gæji sem við höfðum aldrei séð áður að hann hefði verið að fá sms frá fyrrverandi kærustunni sinni. Ég tek það fram að við þekktum þennan mann ekki neitt. Hann sagði okkur að hún hefði verið að senda sér eftirfarandi skilaboð: Áttu ekki einhvern virkilega sætan og sexý vin fyrir mig... ég er nefnilega svo gröð núna.. segðu honum bara að koma heim til mín í kvöld og ég passa upp á það að hann fari fullnægður heim. Svo fór hann að segja okkur frá því að hún ætti 2 börn með tveimur gæjum og hún væri algjör hóra og ég veit ekki hvað... Ég fór strax að velta því fyrir mér hvort einhver hefði lent í svona á Íslandi þar sem að bláókunnugur maður myndi skella sér á trúnó við hann í ræktinni og ekki einu sinni með áfengi við hönd...

Það er greinilegt að ég á ekki að fyrirgefa Ragnhildi né Kristínu fyrir að éta allt nammið mitt og allar kökurnar því að 60% af 180 manns sem tóku þátt í skoðanakönnuninnni vildu ekki að ég fyrirgæfi þeim.. en þar sem að ég er svo mikill öðlingur þá ætla ég nú samt að fyrirgefa þeim..

Kveðja frá þeim ráðvillta!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 15:59:30 / Addi T

Áhugaverð sundlaugarferð

Sundlaugarreglur í Danmörku eru frekar furðulegar og fékk ég að kynnast því í morgun.

Þegar maður er meiddur þá þarf maður að vera í allskyns endurhæfingu. Ég þurfti að skella mér í smá sund í dag og synda nokkrar ferðir. Þegar ég kem í sundlaugina þá er skólasund í gangi og hugsa með mér að það verði frekar pirrandi að sitja í pottinum með 7 börnum (vegna þess að það mega bara vera 8 í heita pottinum í einu og já það er bara leyfilegt að vera í pottinum í 20 mínútur í einu svo þarf pottur að fá pásu í 20 mínútur svo að hann geti hreinsað sig). Þegar ég er búinn að synda mínar ferðir ætla ég að fara í pottinn en NEI þá er potturinn lokaður af því að það voru einhverjir að svindla í gær og voru í 45 mínútur í einu í pottinum og það ofgerði víst hreinsunarbúnaðinum og því þarf potturinn að fá að vera í friði í allan dag!!!! Ég kúkaði næstum því í mig úr hlátri.. þetta var svo fáránlegt, þeir höfðu meðal annars skipað einn starfsmann til að passa upp á pottinn og þurfti hann að standa við pottinn allan opnunartímann á lauginni.

Ekki var nóg með þetta með pottinn heldur þegar ég er að klæða mig úr fötunum þá er einn strákahópurinn að fara upp úr og ég heyri kennarann þeirra kalla á þá. Stuttu síðar er bankað á hurðina að klefanum og hurðinni er opnuð nánast með því sama og inn gengur kennarinn þeirra sem bæ þé vei var kona. Hún gekk bara inn í klefann eins og ekkert væri sjálfsagðara og rak strákana sem voru í sturtu út úr sturtuklefanum og sagði þeim að drulla sér í fötin ef þeir ætluðu ekki að missa af rútunni. Ég fór strax að hugsa um að ef þetta myndi gerast á Íslandi þá yrði manni umsvifalaust vikið úr starfi.

Pælið aðeins í forsíðufréttinni hjá mogganum: Kennari gengur inn á kvenkyns nemndur sína í sturtu. svo réttlætir kennarinn þetta með því að segja: Rútan var alveg að fara að leggja af stað þannig að ég varð hreinlega að fara inn í sturtuklefann og segja stelpunum að drífa sig af stað ef þær ætluðu með rútunni til baka!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 12:15:25 / Addi T

Köku og nammiþjófnaður!!!

Jæja þá er maður loksins komin yfir það að hafa verið yfirgefinn af kærustunni enn einusinni. Hún kom í heimsókn og dvaldist í eina viku sem er bara alls ekki nægilega langur tími, sérstaklega þegar karl faðir minn var að þvælast fyrir okkur fyrstu dagana. Pabbi og Kristín komu með fullt af íslensku nammi og helling af jólakökum frá móður minni sem mig hlakkaði mikið til að njóta yfir langan tíma. En nei Stína var sko á öðru máli. Hún kláraði nefnilega smákökurnar á tveimur dögum og ég var svo heppinn að ná að nappa 3 súkkuðlaðibita kökum frá henni. Það var samt ekki án hættu því að hún var næstum því búin að bíta af mér puttana þegar ég læddist í kökuboxið HENNAR!!! eða með hennar orðum: "LÁTTU KÖKURNAR MÍNAR VERA!! ÉG Á ÞÆR EKKI ÞÚ!! Það er ekki nóg með að Kristín át allar kökurnar mínar heldur kom Ragnhildur Guðmundsdóttir í heimsókn á meðan ég var á æfingu og átu þær vinkonurnar allt nammið sem ég fékk líka.. Ég var heppinn að vera búinn að borða 4 þrista áður en hún kom í heimsókn annars hefði ég ekki fengið neitt.

Ég er núna gjörsamlega 100% viss um að það finnist ekkert leiðinlegra en að vaska upp.. það er algjört helvíti. Næst á innkaupalistanum er uppþvottavél.

Við spiluðum við útlendingahersveit Ribe fyrir rúmri viku, en liðið inniheldur 3 íslendinga og 3 ástrala og áttu þeir ekki sjéns í handboltaliði úr hámenningunni, en Nyköbing er víst að stefna á það að verða menningarborg Evrópu 2008. Ég vil þakka íslendingunum í Ribe fyrir að ljúga að mér fyrir leikinn, vel gert hjá þeim að sína mikinn karakter svona rétt fyrir leik. En annars skemmti ég mér konunglega við að horfa á leikinn af varamannabekknum en ég fékk 0 mínútur í þessum leik, alveg yndislegt. En það eru samt spennandi hlutir að gerast í handboltanum hérna. Vonandi verð ég með einhverjar fréttir um það fljótlega!!

Og já Bruce Willis var valinn í næstu kvikmyndaviku sem mun hefjast í dag með úrvalsræmunni fifth element.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 15:42:11 / Addi T

Íslendingaslagur

Mikið að gerast um helgina hérna á Mors. Á laugardaginn koma pabbi og Kristín í heimsókn og verður gaman að fá að eyða smá tíma með þeim, hlakkar mikið til að hitta þau. Svo á sunnudaginn kemur munu HF Mors mæta Ribe í hinni stórkostlegu höll í Thisted. Það vill  svo skemmtilega til að aðstandendur Mors ákváðu að selja leikinn til Thisted sem er bara fínt og hlakkar mig mikið til að hitta Tryggva bæjarfógeta og félaga.

Með tilhlökkunar kveðjum frá sveitasælunni í Mors


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 10:42:47 / Addi T

Skítaleikur í skítahöll

Við spiluðum á Sunnudaginn við Ydun (sem er fáranlega erfitt að segja á dönsku). Þetta lið gæti ekki unnið 3.flokk hjá Stjörnunni en okkur tókst að stela sigrinum af þeim á síðustu mínútunum. Við gátum ekki rass í þessum leik. Það sem mér fannst lang merkilegast í þessum leik var höllin sem við spiluðum í.. Það voru 10 cm frá hliðarlínu og í vegg, frekar svekkjandi að vera hornamaður. Svo voru svona 20 cm frá endalínu að vegg og svo var pláss fyrir um 57 áhorfendur sem voru alveg brjálaðir frá fyrstu mínutu til þeirra síðustu.

Danir eru frekar furðulegir.. Það var leikur í 1. deildinni í handbolta síðustu helgi sem var frestað eftir 30 mínútna leik vegna þess að það voru nokkrir leikmenn sem spiluðu með ökklahlífar og hnéhlífar.. Dómarar leiksins ákváðum í hálfleik að fresta leiknum vegna þess að það gæti verið hættulegt fyrir aðra leikmenn að spila ámóti leikmönnunum með hlífarnar.. Það sem ég skil ekki er að þeir voru búnir að spila í 30 mínútur af hverju frestuðu þeir ekki leiknum  áður en hann byrjaði í stað þess að leyfa þeim að spila helminginn af leiknum.. Já baunarnir eru sko frekar furðuleg kvikindi!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 09:10:28 / Addi T

Leiðindi.. Kannski vinn ég keppnina hans Adda Stóra!!

Leikur númer 2 á heimavelli. Jafntefli staðreynd 29-29 kannski ekki slæmt miðað við að við vorum 2 undir þegar 5 mínútur voru eftir en frekar slæmt miðað við það að við vorum með boltan og einu marki yfir þegar 25 sekúndur voru eftir.. En þá þurfti einn af ungu strákunum í liðinu að kasta boltanum beint í hendurnar á þeim. Ég fékk ekki að spila mikið hugsanlega vegna þess að ég var ekkert búinn að æfa í vikunni vegna ökklameiðsla en spilaði samt afar vel þegar ég var inná og setti eitt gullfallegt mark ásamt því að næli í 2 víti. Næsti leikur er á móti Ydun (sem er fáranlegar erfitt að segja rétt) í kaupmannahöfn yndislegt að þura alltaf að eyða 12 tímum í rútu til að spila einn leik, svo var maður að kvarta yfir því að þurfa að keyra til Akureyrar.

Ég hef verið að velta því mikið fyrir af hverju það er svo mikið af "roadkills" hérna í Danmörku.. ef þú keyrir í aðeins út fyrir bæjarmörkin eru 100% líkur á að þú sjáir að minnsta kosti tvo "roadkill". í gær þegar ég var að keyra heim eftir leikinn þá sá ég átjan héra hlaupa yfir götuna á 10 metra kafla svo 5 metrum síðar kemur refur á miljón út á götuna og ég gat ekki annað gert en að keyra yfir greyið dýrið.

En svona til að rífa humorinn aðeins upp þá sá ég einn fyndnasta hrekk sem ég hef séð á netinu lengi í gær. Hérna er myndband af stelpum að taka þátt í rannsókn um kossa.

http://www.metacafe.com/watch/280872/monkey_kissing/


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12